Mannvirkjafréttir frá Samtökum iðnaðarins
Tækifæri til úrbóta sem kalla ekki á lagabreytingar eða aukin ríkisútgjöld
Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í Morgunblaðinu, Bítinu á Bylgjunni og Speglinum á Rás 1 um tækifæri í...
Vel sóttur fundur SI um tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu
Tækifæri í einföldun regluverks og stjórnsýslu var til umræðu á vel sóttum fundi Samtaka iðnaðarins sem fór fram dag í Kaldalóni...
SI leggja áherslu á óhindraðan aðgang að innri markaðnum og mótvægisaðgerðir vegna CBAM
Í umsögn SI um drög að frumvarpi til laga um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis, CBAM, hvetja samtökin stjórnvöld til...
Ertu með spurningu?
591 0100Opið 08 - 16 alla virka dagaSamtök innviðaverktaka
Hlutverk Samtaka innviðaverktaka er að stuðla að bættu starfsumhverfi innviðaverktaka, vera sterkur málsvari félagsmanna, upphefja ímynd greinarinnar og tryggja öflugt alþjóðlegt samstarf við systursamtök. Gott starfsumhverfi innviðaverktaka gerir þeim kleift að mæta þarfri innviðauppbyggingu á heilbrigðum útboðs- og verktakamarkaði.
Stefnuáherslur samtakanna 2024-2029 eru eftirfarandi:
- Öflug innviðauppbygging.
- Tækniframfarir mæta þörfum markaðarins.
- Kröftugur og hæfur mannauður starfar á aðlagandi atvinnumarkaði.
- Jákvæð ásýnd og öflugt félagsstarf.
Stofnað 7. desember 1953
Samtök innviðaverktaka voru stofnuð 7. desember árið 1953 á skrifstofu Almenna byggingafélagsins hf. í Reykjavík.
Félagsmenn
Breiður hópur félagsmanna myndar samtökin, allt frá einyrkjum upp í stór jarðvinnufyrirtæki.

